Hillary Clinton hefur langsterkasta stöðu þeirra sem eru orðaðir við forsetakjör í Bandaríkjunum 2016. Ef hún ákveður að bjóða sig fram virðist ljóst að Demókratar fylkja sér að baki henni. Hins vegar er Repúblikanaflokkurinn margklofinn og ekkert forsetaefni sem þar skarar fram úr.
Þetta skrifar dálkahöfundurinn John Avlon á vef CNN.
Avlon segir að venjan hafi verið að Repúblikanar finni sér kandítada sem hafi verið lengi framarlega í stjórnmálunum, menn eins og Nixon, Bush og Dole. Demókratar hafi hins vegar verið gjarnari á að velja óvæntari forsetaefni, hann nefnir Carter, Clinton og Obama.
En í þetta sinn er það þveröfugt. Hin margreynda Hillary Clinton hefur risavaxið forskot á aðra Demókrata sem gætu hugsað sér forsetaembættið og reyndar er það svo að ef hún býður sig ekki fram gæti flokkurinn lent í vandræðum með að finna vænlegan kandídat.
Hjá Repúblikönum þykir Chris Christie, ríkisstjóri í New Jersey, einna líklegastur, en einnig eru nefndir til sögunnar Paul Ryan, varaforsetaefni Mitts Romney í síðustu kosningum, og Jeb Bush, bróðir George W. Bush. Enginn þessara frambjóðenda hefur þó afgerandi stöðu.
Í forsetatíð Bills Clinton var Hillary umdeild, naut í raun ekki sérstakra vinsælda. Það hefur breyst, hún nýtur mikillar virðingar, og nú hefur hún góðar líkur á að verða fyrsta konan til að gegna forsetaembætti í Bandaríkjunum. Það yrðu tímamót.
Þess skal svo getið að Avlon hefur til hliðsjónar skoðanakönnun sem sýnir að 65 prósent þeirra sem hallast að Demókrötum gætu hugsað sér að styðja Hillary Clinton. Hún nýtur mun meira fylgis hjá konum en körlum. 17 prósent þeirra sem styðja Repúblikana segjast tilbúnir að kjósa Chris Christie.