fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Eyjan

Ofvöxtur höfuðborgarsvæðisins

Egill Helgason
Sunnudaginn 8. september 2013 10:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef ferðast mikið um landið í sumar – eins og reyndar mörg sumur.

Nú er ég staddur á Vestfjörðum, sat hér skemmtilega ráðstefnu um helgina undir yfirskriftinni Í byrjun tveggja alda.

Það voru ýmsar hugleiðingar sem vöknuðu á þessari ráðstefnu.

Eitt varðar til dæmis hinn ótrúlega flótta í borgirnar.

Sex stærstu bæir landsins liggja saman þar sem nú er kallað höfuðborgarsvæðið. Spölkorn frá eru í afar góðu vegasambandi tveir aðrir stórir bæir.

Á þessu svæði búa um 75 prósent landsmanna.

Þetta er nánast einstakt í heiminum – það má jafnvel segja að Ísland stefni í að verða eins konar borgríki.

Því er spáð að Íslendingum fjölgi um 100 þúsund til 2060 – miðað við þróunina bendir flest til að nær öll fjölgunin verði á suðvesturhorninu.

Þetta er í raun ekki skemmtileg þróun, því Ísland væri miklu skemmtilegra og betra ef væri til annað þéttbýlissvæði til mótvægis við Reykjavík. Akureyri, þrátt fyrir öll sín ágætu lífsgæði, nær því ekki alveg.

En ofvöxtur höfuðborgarsvæðisins hefur haft ýmis vandamál í för með sér. Skipulagið er mjög ruglingslegt, meðal annars vegna þess að þarna eru mörg sveitarfélag að keppa. Arkitekt á ráðstefnunni nefndi sem dæmi skóla í Hafnarfirði. Þar eru starfand margir stórir skólar, enda mikið af börnum. En byggðin hefur vaxið mjög hratt. Skólar eru byggðir, en svo fækkar í hverfunum, ný hverfi rísa og reistir eru nýir skólar. Þarna eru miklar fjárfestingar sem nýtast illa.

DSCF6038

Vöxturinn á höfuðborgarsvæðinu hefur verið einna mestur í Hafnarfirði. Fjárhagsstaða bæjarins er slæm, enda nýtast fjárfestingar illa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“

Sigmundur uppskar mikinn hlátur á Alþingi í dag – „Vinnustaðasálfræðingur, frú forseti, hefur verið fenginn af minna tilefni“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Leigubílafarganið

Björn Jón skrifar: Leigubílafarganið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Evrópuhreyfingin: Húsfyllir á aðalfundi – Magnús Árni tekur við formennsku af Jóni Steindóri

Evrópuhreyfingin: Húsfyllir á aðalfundi – Magnús Árni tekur við formennsku af Jóni Steindóri