Ég ætla að lýsa yfir samstöðu með forsætisráðherra Íslands. Ég á nefnilega við svipað vandamál að stríða og hann.
Það kemur fyrir að stóra táin á mér bólgnar óskaplega upp. Þetta var rannsakað, myndað í bak og fyrir, og kom í ljós að liður í stóru tá á vinstri fæti er brákaður. Ef ég reyni á tána með vissum hætti, til dæmis ef ég geng lengi berfættur í sandi, á táin það til að bólgna.
Við þetta verð ég nokkurn veginn ógöngufær og það getur því miður staðið nokkuð lengi. Kannski þarf ég einhvern tíma að fara í aðgerð til að láta laga þetta.
Þegar þetta gerist á ég mjög erfitt með að komast í skó – nema kannski helst íþróttaskó. Ég get eiginlega ekki troðið mér í sko þótt ég ætti lífið að leysa.
Og ekki heldur þótt ég væri að fara á fund forseta Bandaríkjanna.