fbpx
Laugardagur 10.maí 2025
Eyjan

Kjóll og hvítt

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. ágúst 2012 14:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

  • Þingmenn eru ekki of góðir til að vera viðstaddir innsetningu forseta Íslands – ef þeir eiga heimangengt. En það er engin ástæða fyrir þingmenn sem eru langt í burtu að koma til Reykjavíkur vegna þessa.

En það er rétt sem sagt er – það er út í hött að ætlast til þess að karlar séu klæddir í kjól og hvítt við þessa athöfn. Fæstir karlmenn eiga slík föt lengur, enda engin ástæða til – ekki nema maður syngi í karlakór. Kórfélagar klæða sig stundum svona fínt upp. Svo er líka beðið um heiðursmerki – það hefur víst tíðkast hjá hinu opinbera að veita slíkt fólki sem gerir ekki annað en að mæta í vinnuna, svona til að það verði gjaldgengt í veislur.

Það verður athyglisvert að heyra ræðu Ólafs Ragnars – verður maður ekki að gera ráð fyrir að þetta sé síðasta embættistakan hans?!

Það hlýtur að standa upp á forsetann að bera smyrsl á sárin eftir forsetakosningarnar. Það er langt til seilst að ætlast til að forseti sé „sameiningartákn“ – en hann getur samt ekki leyft sér að vera einungis forseti þeirra sem eru til að mynda á móti Evrópusambandinu eða á móti breytingum á stjórnarskránni.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 klukkutímum
Kjóll og hvítt
EyjanFastir pennar
Fyrir 16 klukkutímum
Óttar Guðmundsson skrifar: Vælustjórnun

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn