
Í James Bond myndinni Tomorrow Never Dies segir frá fjölmiðlakóngi með mikilmennskubrjálæði, leiknum af Jonathan Pryce, sem hyggur á einhvers konar heimsyfirráð – líkt og títt er um vondu karlana í Bondmyndum. Hann ætlar að setja heiminn á annan endann – til að ná betri áhorfstölum fyrir fjölmiðla sína.
Líkindin við fjölmiðlakónginn Rupert Murdoch duldust engum sem horfði á myndina. Murdoch er einn voldugasti maður í heimi. Ríkisstjórnir eru lafhræddar við hann, ekki síst sú breska sem til dæmis þorir ekki að sýna Evrópusambandinu nein í líkingu við vinarhót – af ótta við hatursáróðurinn sem streymir úr fjölmiðlum Murdochs, ekki síst dagblaðinu The Sun.
Í Bandaríkjunum á hann meðal annars sjónvarpsstöðina Fox þar sem er hefur verið dælt út áróðri fyrir Bush, Íraksstríðið og stríðið gegn hryðjuverkum. Í Bretlandi á hann Sky sem er – já segjum hlutina eins og þeir eru – hreinræktað drasl.
Nú er komið upp í Bretlandi hneykslismál þar sem kemur í ljós að News of the World, fjölmiðill í eigu Murdochs, hefur stundað símahleranir. Viðriðinn við málið er meðal annars fyrrverandi ritstjóri blaðsins, Andy Coulson, sem er núverandi fjölmiðlaráðgjafi Davids Cameron, formanns Íhaldsflokksins, og Rebekah Wade, fyrrverandi ritstjóri News of the World og The Sun, en hún er nú yfirmaður dagblaða Murcochs í Bretlandi.
Meðal þeirra sem hafa verið fórnarlömb þessara njósna Murcochs-fjölmiðlanna eru John Prescott, fyrrverandi vara-forsætisráðherra, Gordon Taylor, framkvæmdastjóri samtaka atvinnufótboltamanna (Mudoch hafi borgað honum 700 þúsund pund í skaðabætur til að reyna að eyða málinu), Boris Johnson, núverandi borgarstjóri í London, leikkonan Gwyneth Paltrow, sjonvarpskokkurinn Nigella Lawson og söngvarinn George Michael.