fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Örlagaríkir dagar í Bretlandi

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. júlí 2009 07:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

26. júní flutti stjörnublaðamaðurinn Sigrún Davíðsdóttir gagnmerkan pistil í Speglinum. Pistilinn sagði frá samskiptum breska fjármálaeftirlitsins, FSA, við Landsbanka og Kaupþing, dagana fyrir hrunið. Samkvæmt pistlinum hefur sú saga ekki verið sögð almennilega. Kjarni hennar er að FSA virðist hafa lagt hald á innlánsfé bankanna mörgum dögum áður en þeir voru teknir yfir af breskum yfirvöldum. Í því felst meðal annars að Kaupþing kann að hafa blekkt Seðlabankann þegar hann fékk stórt lán – og þetta vekur líka spurningar um hvað íslensku bankamennirnir voru að aðhafast þessa daga og hvað bresk yfirvöld vissu um framferði þeirra.

Það er furðulegt hversu lítið hefur verið um þetta fjallað hér.

Helstu efnisatriðin eru svohljóðandi:

FSA gerði atlögu að bæði Landsbanka og Kaupþingi, þ.e. bönkunum sem voru með innlánareikninga – en það gerðist margt fyrir 8. október, daginn sem hrunið er venjulega miðað við.

Fö. 3. okt., eftir lokun, fór breska fjármálaeftirlitið, FSA, fram á það við bæði Singer & Friedlander, dótturfélag Kaupþings og Heritable, dótturfélag Landsbankans, að allar innlagnir í bankana færu á sérstakan bundinn reikning í enska seðlabankanum. Tilmælin voru afturvirk um einn dag, þ.e. þetta gilti um innlán frá og með 2. okt.

Þann 6. okt. fékk Kaupþing lán upp á 80 milljarða frá Seðlabankanum. Enginn yfirlýsing hefur verið gefin um hvort Seðlabankinn hafi vitað um aðgerðir FSA. Óformlegar fyrirspurnir benda til að Kaupþing hafi ekki upplýst Seðlabankann um bresku aðgerðirnar.

Að kvöldi mánudagsins 6. okt. hafði Heritable ekki lagt neitt inn hjá enska seðlabankanum svo FSA herti aðgerðirnar og tók yfir lausafé sem bankinn átti hér í tveimur viðskiptabönkum.

Að morgni þriðjudagsins 7. okt., daginn sem Darling og Árni Matthiesen ræddu saman, voru innlánsreikningar Heritable lagðir undir hollenska ING bankann. – Engar þessara aðgerða spurðust út.

Það var ekki fyrr en á miðvikudeginum 8. okt. að tilkynnt var opinberlega um frystingu fés Landsbankans og svo að Kaupþing Edge yrði lagt undir ING bankann. Þessar aðgerðir virtust koma eins og þruma úr heiðskíru lofti – en nei, þær voru það öldungis ekki.

Þessa upplýsingar komu fram í skilanefndarskýrslum KSF og Heritable í Englandi í apríl. Það er athyglisvert að Heritable/Landsbankinn virðist samkvæmt þessum upplýsingum ekki hafa farið eftir tilmælum FSA og spurning hvort það ýtti undir frystingu á fé bankans. Hvorki stjórnendur eða helstu eigendur Kaupþings né Landsbankans hafa nokkurn tíma nefnt þessar aðgerðir – og það hafa íslensk stjórnvöld heldur ekki.

Í pistli Sigrúnar segir:

„Það dugir ekki að halda því fram að þessi aðgerð FSA gegn bönkunum tveimur hafi bara verið einhvers konar aðvörun. Þetta var engin aðvörun – það var blóðug alvara. Aðgerðirnar voru rökstuddar með því að viðkomandi bankar uppfylltu ekki lengur skilyrði fyrir starfsleyfi og verið væri að vernda fjármálastöðugleika landsins og innistæðueigendur. Út úr þessari klemmu gátu bankarnir ekki smeygt sér nema að komast í pening – og hvar áttu þeir að gera það eins og ástandið var?“

Og ennfremur:

„Upplýsingarnar um aðgerðirnar fyrir 8. október hafa legið á lausu síðan í apríl. Það er með ólíkindum að íslensk stjórnvöld skuli jafn algjörlega laus við forvitni og löngun til að rekja nú sögu þessara daga fyrir þjóðinni, eins og raun ber vitni.“

Pistilinn má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins