
Davíð Oddsson vill að Icesave verði rekið fyrir íslenskum dómstólum. Jú, gott og vel, en –
Ætli muni þá ekki spyrjast út hvernig frænda fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra var laumað inn í Hæstarétt og líka briddsfélaga hans og besta vini.
Vandinn er nefnilega að vanhæfnin og spillingin á Íslandi nær býsna langt aftur.
Andri Geir Arinbjarnarson, einn skarpasti bloggari landsins, skrifar pistil um þetta á vef sinn:
„Vandamálið er að erlendis hlutar enginn á Íslendinga. Hvað er að marka þá. Þeir eru bjálfar sem klúðruðu öllu svo best er að taka allt sem þeir segja með fyrirvara og sérstakleg það sem þeir segja sem stóðu vaktin í fallinu.
Ríkisábyrgð samþykkt af gjaldþrota ríki er tilgangslaus og það vita Hollendingar og Bretar. Innst inni vita þeir að Ísland getur ekki borgað. En þeir verða að halda andliti fyrir sína kjósendur og sýnast töff sem þeim hefur tekist.
Að mörgu leiti yrði það betra fyrir Hollendinga og Breta ef Íslendingar samþykktu ekki að Icesave því þá gætu þeir farið í hart og krafist eignaupptöku og tolla á íslenskan fisk.
Og auðvita vill Davíð að þetta mál sé rekið fyrir íslenskum dómstólum þar sem nánast hver einasti dómari er handvalinn af honum sjálfum. „Keep it all in the family“ eins og sagt er.“