
Ef maður googlar orðið „könnunarviðræður“ sér maður að það er út í hött að halda því fram að hér hafi verið í gangi einhvers konar blekkingarleikur þess efnis einungis standi til að gera lauslega könnun á ESB-aðild – ferlið felur í sér aðildarviðræður og aðildarsamning, rétt eins og hjá öðrum þjóðum sem hafa farið þessa leið.
Ég man heldur ekki eftir því að hafa heyrt talað um könnunarviðræður – og fylgist þó býsna vel með þjóðfélagsumræðunni.
Þjóðinni er svo frjáls að samþykkja aðildarsamninginn sem gæti orðið tilbúinn eftir tvö til þrjú ár eða hafna honum, rétt eins og frændur okkar Norðmenn hafa gert tvívegis. Þeir sáu heldur aldrei ástæðu til að fara í þjóðaratkvæði um aðildarviðræður.
Birgittu Jónsdóttur tókst að misskilja þetta upp á sitt eindæmi, en það var ekki af því neinn væri að plata hana.