
Það er komið í ljós að það var Marek Topolanek, fyrrverandi forsætisráðherra Tékklands, sem var á tillanum innan um fáklæddu meyjarnar í gestahúsi Berlusconis á Sardiníu.
Topolanek þykir frekar kómísk fígúra í heimalandi sínu.
Líkt og Berlusconi er – svona í aðra röndina. Ef hann væri ekki svona mikill skúrkur.
Deilt er um hvort rétt hafi verið af El Pais á Spáni að birta þessar myndir. Vísað er í dóm sem gekk um myndir sem teknar voru af Karólínu prinsessu.
Auðvitað átti blaðið að gera það: Berlusconi er leiðtogi stórþjóðar í Evrópu. Það getur ekki verið leyndarmál hvernig hann hagar sér.
Svo var annað gestahús sem forveri Berlusconis í Róm, Tíberíus keisari, hafði á Kaprí.
Þar gerðist margt sem ekki þoldi dagsljósið – fyrir tíma paparazza.
En meðan ég man: Var ekki Davíð Oddsson ekki eitt sinn gestur í bústað Silvios á Costa Esmeralda á Sardiníu?