
Lesandi síðunnar sendi þennan póst.
— — —
Takk fyrir „Erfitt að vera með eða móti…“
Þar setur þú tón sem hugnast mér og ég hvet þig til að halda áfram á þessari braut
Stöðugar upphrópanir eru engum til góðs
Mér finnst andleg vanlíðan fólks vera að verða stærsta vandamálið.
Hvert einasta vandmál verður að upphrópun í bergmálsblaðamennskunni.
Framsóknarmenn algerir hælbítar.
Allt snýst í deilur um keisarans skegg.
Fólk er reitt yfir sköttum, samt er ekki hægt annað.
Hvert einasta atriði sem kemur fram um niðurskurð kallar á hörð viðbrögð.
Osfrv.
Er ekki kominn tími til að málin séu afgreidd?
Er ekki kominn tími á sjálfstæðismenn að taka því að atvinnulífið er hrunið og ríkið situr uppi með það.
Það vantar allt efni í tillögur þeirra og umræðu.
Ef rifist er um hvert smáatriði verður aldrei neitt gert og við sitjum föst í eilífu rifrildi og nöldri engum til gagns.
Er ekki bara ágætt að fara að viðurkenna staðreyndir.
Við sitjum uppi með háa skatta næstu árin.
Við munum búa við atvinnuleysi af stærðargráðunni 10%.
Skuldir ríkisins verða miklar.
Ríkið verður að draga saman starfsemi.
Fjöldi fyrirtækja verður afgreiddur með gjaldþrotameðferð/niðurfellingu skulda.
Það þarf að „einkavæða“ bankana og stóran hluta atvinnulífisins á næstu árum.
VIÐURKENNUM STAÐREYNDIR og hættum að röfla yfir þeim.
Við höfum Rannsóknarnefndina um orsakir fallsins.
Við höfum sérstakan saksóknara sem nú hefur fengið starfsgrundvöll.
Ég treysti á þessa aðila.
Umræðan um Hannes Smárason sýnir að það verður tekið á málum.
Þar eru upplýsingar komnar á það stig að augljóst er hvert stefnir.
Ég get sleppt því að hanga yfir þessum málum, við höfum mannskap í þeim sem ég treysti.
Ég vil að við sleppum við kreppukvíðann og snúum okkur að fyrirliggjandi verkefnum
Ég óska mér málefnalegrar umræðu.
Menn eiga að hætta að gera út á kvíðann.