Þessi frétt um hin dularfullu og margumræddu Sterling-viðskipti birtist í Mogganum í dag. Ætlar einhver framar að furða sig á því að gerð sé húsleit hjá þessum höfðingjum?
Í fréttinni kemur fram að FL-Group tapaði 7,1 milljarði á sölu á hlut sínum í Northern Travel Holding, móðurfélagi Sterling, en græddi ekki 5 milljarða í „gervi-hagnað“ eins og haldið hefur verið fram.
Höfundur fréttarinnar er Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður sem hefur átt stjörnutilþrif í Mogganum síðan í hruninu.
— — —
Milljarðatap Stoða vegna Sterling
Tap Stoða, áður FL Group, á sölu hlutar síns í Northern Travel Holding (NTH) og uppgjöri á seljendaláni í tengslum við þá sölu í september 2008 nam 7,1 milljarði króna. Stoðir/FL Group höfðu keypt hlutafé í NTH fyrir fjóra milljarða króna og lánað aðra fjórtán til annarra kaupenda þegar FL Group seldi danska flugfélagið Sterling til NTH á 20 milljarða króna hinn 27. desember 2006. Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem starfsmenn Stoða/FL Group unnu fyrir kröfuhafa félagsins í kjölfar húsleitar efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á heimilum Hannes Smárasonar, fyrrum forstjóra félagsins, vegna viðskipta þess með Sterling. Minnisblaðið, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er dagsett 5. júní síðastliðinn og rekur aðkomu Stoða/FL Group að Sterling frá upphafi. Það byggist á upplýsingum úr bókhaldi félagsins, öðrum gögnum sem aðgengileg eru núverandi starfsmönnum þess og fundargerðum stjórnar.
Millifærslan staðfest
Rannsókn efnahagsbrotadeildarinnar snýr meðal annars að því hvort FL Group hafi millifært fé sem notað var til þess að »lána« eignarhaldsfélaginu Fons, í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, þegar það keypti Sterling vorið 2005 á um fjóra milljarða króna. Í minnisblaðinu kemur fram að 46,5 milljónir dala hafi verið millifærðar af bankareikningi félagsins á Íslandi inn á bankareikning þess hjá Kaupþingi í Lúxemborg hinn 22. apríl 2005. Hinn 30. júní 2005 voru síðan fjármunirnir millifærðir aftur til baka ásamt vöxtum, alls 46,74 milljónir dala. Kaupþing staðfesti að féð hefði verið aðgengilegt félaginu allan þennan tíma.Rannsókn ákæruvaldsins snýr einnig að kaupum og sölu á Sterling. Í minnisblaðinu kemur fram að Stoðir/FL Group hafi keypt Sterling fyrir 14,6 milljarða króna af Fons hinn 24. október 2005. Um 10,7 milljarðar voru greiddir með reiðufé og 3,9 milljarðar með hlutafé í Stoðum/FL Group. Kaupverðið var ákvarðað samkvæmt mati á eignum Sterling og framtíðarspá um EBITDA-hagnað, sem er hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsgjöld.
PriceWaterHouseCooper í Danmörku, Bech-Bruun og lögmannstofan Logos voru fengin til að vinna áreiðanleikakannanir. Allir stjórnarmenn félagsins samþykktu kaupin hinn 21. október 2005.
Enginn »gervi-hagnaður
«Sterling var síðan selt aftur hinn 27. desember 2006 til nýstofnaðs félags, Northern Travel Holding (NTH), á 20 milljarða króna. Það var í eigu Stoða/FL Group (34,8%), Fons (43,2%) og Sunds (22%), sem hafði sölutryggingu á sínum hlut. Sund greiddi 2,7 milljarða fyrir hann en seldi hann innan við ári síðar til Baugs á sömu upphæð auk vaxta. Í minnisblaðinu kemur fram að greitt hafi verið fyrir kaup NTH á Sterling með sex milljörðum króna í reiðufé og 14 milljarða króna hluthafaláni. Í staðinn keyptu Stoðir/FL Group um þriðjungshlut í NTH.
Ef miðað er við bókfært virði Sterling í bókum Stoða/FL Group í lok september 2006 nam tap félagsins vegna sölunnar á Sterling 371 milljón króna. Í minnisblaðinu segir orðrétt að það sé »í andstöðu við þá almennu skoðun að viðskiptin hafi skapað »gervi-hagnað« upp á 5 milljarða fyrir FL Group«. Þetta er meðal annars útskýrt í minnisblaðinu með gengissveiflum, niðurfærslu á hluthafaláninu og lækkun á bókfærðu virði Sterling í bókum félagsins vegna taprekstrar flugfélagsins. NTH var að lokum selt til Fons í september 2008 og Sterling með. Fons átti eftir það NTH að fullu. Hluthafalánið, sem upphaflega var 14 milljarðar, var gert upp í þessum viðskiptum.
Í minnisblaðinu kemur fram að tap Stoða/FL Group, bæði vegna seljendalánsins og fjögurra milljarða króna hlutarins sem félagið keypti í NTH, hafi numið 1,3 milljörðum á árinu 2006, tveimur milljörðum árið 2007 og 3,8 milljörðum árið 2008. Samtals gerir það 7,1 milljarð. Alls fengust greiddir 10,9 milljarðar til baka í formi reiðufjár og eigna.