
Í ályktun Lögmannafélagsins sem fjallað er um í síðustu færslu er talað um „hið svokallaða bankahrun“.
Svokallaða.
Allir bankarnir lenda í höndum ríkisins á einni viku og fljótlega fylgja aðrar bankastofnanir í kjölfarið.
Svokallað.
Það eru bara spakvitrir menn sem skrifa svona.
Ætli sé hugsanlegt að í huga þeirra sé þeir sem tala um hrun án þess að segja „svokallað“ sjálfkrafa vanhæfir?