
Það er ástæða til að rifja upp að þegar auglýst var staða sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins sótti enginn úr hinni íslensku lögmannastétt um.
Enginn.
Það var nú allur þorstinn eftir réttlæti.
Og þá má líka rifja upp orð Evu Joly sem segir að erfitt sé að sakfella ríkt og valdamikið fólk.
Í orði kveðnu eru allir jafnir fyrir lögunum, en er það svoleiðis í rauninni?
Þá má nefna að Lárentínus Kristjánsson, formaður Lögmannafélagsins, sem skrifar undir ályktunina frá félaginu situr í skilanefnd Landsbankans og reyndar hefur hann einnig verið stjórnarmaður í fjárfestingarfélaginu Stapa.
Skilanefnd Glitnis hefur ráðið fræga spæjarastofu, Kroll, til að skoða brotlegt athæfi innan bankans, til dæmis hvort fé hefur verið sogið út úr honum með sviksamlegum hætti.
Ekki hefur orðið vart við að stjórn skilanefndar Landsbankans hafi gert neitt slíkt. Það kannski samræmist ekki hugsjónum Lárentínusar.