
Þetta er rétt hjá Friðriki Jónssyni, það er fráleitt að ætla að ná hér hallalausum fjárlögum á þremur árum.
Hreint glapræði. Ég hef reyndar áður sagt að líklegt sé að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn verði hérna lengur en árin þrjú sem ætlað er.
Hins vegar er vandi okkar sá að undir eins og farið er að eyða og spenna til að örva hagkerfið myndast verðbólguþrýstingur og lánin hækka enn vegna verðtryggingar. Við höfum þannig takmarkaða möguleika á að beita aðferðum Keynes til að komast úr kreppunni.
Þetta er hin hryllilega þversögn kerfisins sem við búum við.
Sem segir okkur að krónan er ónýt sem gjaldmiðill – og það er auðvitað ekki síst vegna hennar og fáránlegrar stjórnunar peningamála að við erum í þessari stöðu, milli sleggjunnar og steinsins.