fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bréf um gjaldeyrisskil, nepótisma og FærSave

Egill Helgason
Sunnudaginn 21. júní 2009 16:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gjaldeyrir sem ekki skilar sér

Það er ekki nóg að upplýsa um nöfn þeirra fyrirtækja sem skila ekki gjaldeyri skv. skilaskyldu.

Vitað er að nokkrir af fyrrum starfsmönnum bankanna hafa af því umtalsverðar tekjur að miðla gjaldeyri á milli útflytjenda og innflytjenda, auðvitað án viðkomu í SB.

Um er að ræða ábatasöm viðskipti.

Nokkur fyrirtækja þessara fyrrum bankamanna eru þekkt. Að mér vitandi hafa þau ekki verið rannsökuð þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar til sérstaks saksóknara, SB og til fleiri aðila.

Í mínum huga er ekki aðeins um gróf lagabrot að ræða. Mér liggur við að kalla þetta landráð

— — — —

Nepótismi

Sæll Egill. Takk fyrir allt þitt starf. Útúr skrifum þínum kom fram
hugmynd um að kalla þá menn sem ráðnir eru vinar og eða ættfræðilega
NEPORÁÐNA. Bæta nepo allstaðar framanvið nöfn þeirra og niðurlægja þá,
þannig að þetta verði ekki eftirsóknarvert.

— — —

FærSave dæmisagan

Mörgum Íslendingum finnst IceSave samningarnir ekki góðir. Talað er um landráð og að þingið eigi hispurslaust að hafna þeim. Svo eru nokkrir sem segja að við eigum að samþykkja þá því betra boð fæst ekki. Enginn talar samt um hvort samningarnir eru „sanngjarnir“ eða ekki. Öll umræðan er einhliða – það er, hvernig snýr þetta að Íslendingum?  Þetta er kannski skiljanlegt, en með því að líta ekki á víðara samhengið þá slitnar það málinu úr samhengi. Ég áttaði mig sjálfur ekki á stöðunni þar til ég reyndi að setja mig í spor bresks og hollensks almennings, og þá bjó ég til eftirfarandi dæmisögu til að hjálpa Íslendingum að skilja þeirra hlið málsins:

Byrjum á því að segja að Færeyjar hafi fengið sjálfstæði og séu fullvalda þjóð. Í upphafi 21. aldar er færeyskur ríkisbanki einkavæddur og vex eftir það hratt. 2006 lendir hann í fjárhagsvanda en leysir úr málum sínum með því sem kallað er „tær snilldar“ viðskiptahugmynd. Stofnað er netbankaútibú á Íslandi sem heitir FærSave sem yfirbýður íslenskum banka með vexti.

Íslenskur almenningur, fyrirtæki, sveitarfélög og góðgerðarfélög opna reikninga í FærSave og leggja háar fjárhæðir þar inn. Haft er eftir færeyskum bankamanni að hann þurfi bara að hringja til Reykjavíkur í lok hvers dags til að sjá hversu margar milljónir hafi verið lagðar inn þann dag – og hlær. Ýmsum líst þó ekki á blikuna, greiningardeildir, háskólar og jafnvel nokkrir í íslensku stjórnsýslunni vara við þessum reikningum og bankanum. Færeyski bankinn bregst við með að segja að bankinn standi vel og allt tal um annað sé óhróður.

Færeysk stjórnvöld taka undir og jafnvel segja að þeir sem að gagnrýna bankann og viðskiptamódel Færeyinga séu hreinlega öfundssjúkir og hefja áróðursherferð í útlöndum til að reyna að bæta ímynd bankans. Þeir gera þetta þrátt fyrir að færeyski bankinn, færeyski Seðlabankinn og færeysk stjórnvöld öll hafa undir höndum skýrslur er segja að bankinn sé á leið í þrot. Í staðinn fyrir að loka á uppsöfnun á FærSave reikningum er þagað um málið, allt þar til einn októberdag þegar bankinn fellur.

Skyndilega geta Íslendingar ekki nálgast peninga sína inni á FærSave reikningunum. Fjöldi reikninga er svipaður og fjöldi Færeyinga (svipað hlutfall og fjöldi Íslendinga samanborið við fjölda IceSave reikninga) og heildarfjárhæðin er svipað hlutfall af landsframleiðslu Færeyinga og IceSave er hjá Íslendingum. Bankakerfi Færeyingja hrynur á einni viku og færeyska krónan fellur. Þúsundir Íslendinga spyrja nú: „hvar eru peningarnir mínir?“

Hvað er rétt og sanngjarnt að gera núna? Ljóst er að tryggingasjóður innistæðueigenda í Færeyjar hefur hvergi bolmagn til að greiða þessar lágmarks upphæð til þeirra tugþúsunda Íslendinga sem áttu FærSave reikninga. Einstaklingar hafa misst ævisparnaðinn, fyrirtæki eru í vanda og eiga ekki fyrir launum, sveitarfélög þurfa nú að skera niður hjá sér og góðgerðarfélög geta ekki hjálpað skjólstæðingum sínum eins og þeir hefðu lofað.

Peningarnir eru horfnir, en hver á að bera tapið? Hvert er réttláta og sanngjarna svarið við þessu? Eiga þeir sem stofnuðu til þessara reikninga og tóku áhættuna að bera allt tapið, jafnvel fá ekki einu sinni lágmarksbæturnar sem kveðið er á um? Á íslenska ríkið að hlaupa undir bagga og leggja miljarðatugi í að bæta tapið? Eiga Færeyingar ekki að borga neitt? Segjum svo að færeyski seðlabankastjórinn – sá hinn sami og var drifkrafturinn í einkavæðingu bankans á sínum tíma – komi fram í færeyska sjónvarpinu og segi „við borgum ekki“.

Vissulega er það stórt spurningamerki hvort að Færeyingar hafi yfir höfuð bolmagn til að borga FærSave til baka, en hversu sanngjarnt og réttlátt myndi Íslendingum þykja það að þeir kæmust alveg stikkfrí frá því að borga krónu upp í skuldirnar?

Segjum nú að Ísland og Færeyjar semji um FærSave, og sá samningur sé á svipuðum nótum og IceSave samningarnir okkar. Íslenska ríkið lánar Færeyingum fyrir upphæðinni til að greiða til baka lágmarks innistæðueignina, á móti kemur að íslensk stjórnvöld greiða ögn „hærri“ upphæð til innistæðueigenda í viðbót.

Færeyingar fá sjö ár til að koma eignum færeyska bankans í verð – og þurfa ekki að greiða vexti af láninu á meðan – og eftir það tekur færeyska ríkið á sig það sem eftir stendur af skuldunum. Hinsvegar, ef AGS metur það svo að staða færeyska þjóðarbúsins sé það slæm að hann ráði ekki við afborganirnar þá sé hægt að semja aftur. Sem sagt, það er ekki víst að Ísland fái allt lánið sitt tilbaka. Íslenska ríkið er að taka hér með áhættu – allt út af falli banka sem var ekki einu sinni íslenskur. Er sanngjarnt og réttlátt að íslensk stjórnvöld taki á sig svona mikla áhættu og leggi svona mikinn pening af skattfé Íslendinga að húfi út af falli færeysks banka?

Hvernig ætli Íslendingum myndu svo líða ef þeir fréttu af því að Færeyingum þætti samningurinn ömurlegur og vildu reyna allar leiðir til að komast hjá því að greiða krónu vegna hruns bankans?

Nú er dæmisagan búin, en þetta sýnir svolítið (að mér finnst) ákveðna eigingirni Íslendinga í þessu máli. Það er mikið talað um ábyrgð síðan hrunið var, en það er eins og Íslendingar upp til hópa vilja ekki taka ábyrgð á þessu máli. Hvaða ábyrgð spyrja menn? Tja, Landsbankinn var íslenskur banki, stjórnað alfarið af Íslendingum, í eigu Íslendinga, laut lögum Íslands og eftirliti íslenskra yfirvalda. Hann var einkavinavæddur til pólitískt tengdra einstaklinga sem höfðu enga þekkingu á rekstri banka – gleymum því ekki að meirihluti landsmanna kaus einkavæðingastjórnina yfir sig á sínum tíma.

Er ábyrgð Íslendinga samt enginn?

Svo til að bæta gráu ofan á svart hafa íslensk stjórnvöld dregið lappirnar í rannsókn á málinu – og jafnvel þeir sem að báru mesta ábyrgð á IceSave reikningunum fengu vinnu við nýju bankanna . Hvernig hefði Íslendingum líkað slíkt í FærSave dæminu?

Mér finnst IceSave ekki góður kostur, en ég held að hann sé sá besti af því sem komið er. Ég vil frekar borga eitthvað af IceSave til baka en að vera þekktur fyrir að vera ríkisborgari þjóðar sem að rænir sparifé annara og neitar síðan að borga krónu af því til baka. Ég held jafnframt að við höfum sloppið býsna vel með þessum samningum, því ég er efins um að við Íslendingar hefðum verið svo rausnarlegir við aðrar þjóðir að taka það á okkur að lána helminginn og borga hinn helminginn af skuldum annara. Leiðréttið mig hver sem dregur það í efa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins