
Grikkir eru að opna afskaplega fallegt safn við Akrópólishæð. Það hýsir muni sem hafa fundist á hæðinni og voru áður í litlu og óþægilegu safni þar uppi.
Byggin er einstaklega vel heppnuð og svæðið kringum safnið er mjög skemmtilegt.
Þá er bara beðið eftir því að Bretar skili lágmyndum og höggmyndum sem Elgin lávarður fjarlægði af Akrópólis og eru geymdar í British Museum.
Bretar, sem ennþá eru ekki búnir að komast yfir að þeir eru ekki lengur heimsveldi, neita að skila myndunum í sínum dæmalausa hroka.
Elgin tók myndirnar meðan Grikkir voru ennþá undir Tyrkjum í upphafi 19. aldar, hann var sendiherra Breta í Ottómanríkinu og taldi ráðamenn þar á að hann fengi að flytja þær til Bretlands.
Strax á þeim árum var talað um hann sem fornminjaræningja.
Danir höfðu manndóm til að skila Íslendingum handritunum 1970, 26 árum eftir stofnun íslenska lýðveldisins.
Sjáið myndband af safninu hér í frétt BBC.