
Skuldir sjávarútvegsins eru 500-800 milljarðar. Auðlindin hefur verið veðsett frá hausi aftur á sporð, mörg ár fram í tímann.
Í þessu skyni var beitt alls kyns brellum við veðsetningu kvótans. Það var byggt á verði sem átti sér ekki stoð í veruleikanum.
En þetta má lesa í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegsmál.
„Aflamarkskerfi með framseljanlegum heimildum hefur gefið greininni nauðsynlegt svigrúm til hagræðingar og þróunar og skilað þjóðarbúinu miklum ávinningi.“