

Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um bók sem heitir Orðspor, gildin í samfélaginu. Bókin er að sönnu tímabær nú á stund sjálfsþekkingar, eftir að steigurlætisleg fullvissa góðærisins er horfin – en í staðinn höfum við kreppu með leit að nýjum svörum, nýjum gildum. Höfundur bókarinnar er heimspekingurinn Gunnar Hersveinn.
Birna Þórðardóttir segir frá ljóðabók eftir sig sem nefnist Birna þó – og inniheldur mestanpart ástarljóð.
Við kynnumst ævintýraheimi einhvers vinsælasta rithöfundar í veröldinni, Terry Pratchett. Hann hefur skrifað mikið af bókum sem hafa selst í milljónaupplögum – og hafa nokkrar þeirra komið út á íslensku.
Kolbrún og Páll ræða um ljósmyndabækur og tvær nýútkomnar bækur sem fjalla um heimsstyrjöldina síðari.
En Bragi segir frá þeirri merku vísindakonu Margréti Guðnadóttur.