
Myndin sem fylgir hérna með er merkileg í ljósi umræðunnar um bankaleynd og leka úr bönkunum. Sumir telja að það sé afar slæmt að upplýsingar leki úr kerfinu, álíta það alvarlega misnotkun.
Þetta er súlurit sem er komið frá ACFE, Association of Certified Fraud Examiners í Bandaríkjunum, samtökum þeirra sem rannsaka fjármálamisferli.
Súluritið sýnir hvernig kemst upp um misferli. Í flestum tilvikum, eða 34,2 prósent, er það vegna ábendinga.
En í aðeins 20,2 prósent tilfella er það vegna innri endurskoðunar.
Þetta sýnir hversu mikilvægt er að vernda þá sem gera uppvíst um svik – í því sambandi má nefna að þrjár konur sem voru „uppljóstrarar“ (whistleblowers) í Enron málinu voru kjörnar menn ársins í Time árið 2002.
Hér er súluritið: