
Með falli Milestone, en eigur þess eru nú komnar endanlega í hendur skilanefndar Glitnis, hefur íslenska ríkið eignast fyrirtæki sem voru rekin af tveimur gulldrengjum íslenska efnahagsundursins. Báðum tókst að reka fyrirtæki sín þannig að nú hefur hið opinbera gert þau upptæk.
Sjóvá-Almennar – en þar hefur Þór Sigfússon verið forstjóri. Um bótasjóð Sjóvár hefur talsvert verið rætt. Eigendur félagsins virðast hafa gengið í hann, en jafnað svo út skuldirnar með fasteignum sem Milestone lagði í sjóðinn. Sagt er að talsvert af þessum fasteignum sé í Austur-Evrópu.
Og Askar Capital – en þar var Tryggvi Þór Herbertsson forstjóri. Askar undir hans stjórn voru eitt fárra íslenskra fjármálafyrirtækja sem fjárfesti í stórum stíl í bandarískum undirmálslánum.
Þór er stjórnarformaður Samtaka atvinnulífsins, en Tryggvi er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn.