
Tryggvi Gunnarsson sendi mér þetta bréf.
— — —
Áskorun til fjölmiðlafólks
Þegar Alþingiskosningar nálgast, skríða lýðskrumarar fram úr skúmaskotunum. Hinir Framsæknu eru enn á ný komnir á kreik með stóran og verðbólginn kosningavíxil á ótrúlega hagstæðum kjörum fyrir kjósendur. En Sjálfstæða fólkið bíður spennt átekta bak við gisinn frjálshyggjurunna, reiðubúið að stökkva uppá þennan atkvæðavæna lýðskrumsvagn, sem nefnist 20% niðurfelling á skuldum húsnæðiskaupenda og fyrirtækja.
Margir af þeim, sem ekki tóku þátt í neyslubrjálæði undanfarinna ára, eiga nú í sárum vanda vegna húsnæðiskaupa. Þessu fólki verður hið opinbera að koma til aðstoðar til að létta því greiðslubyrðarnar, t.d. með einhverjum afskriftum af skuldum auk annarra aðgerða. Mun stjórnarfrumvarp vera á leiðinni, sem tekur vonandi á þessum málum venjulegs fólks af skynsemi og réttsýni.
En sú hugmynd, að fara að umbuna þeim sem óðast stunduðu hrunadansinn í kringum gullkálfinn á nýliðnum gróðærisárum, er gjörsamlega galin. Í mörgum tilvikum er um að ræða velefnaða einstaklinga, sem fengju þá felldar niður háar fjárhæðir og væru það þá eins konar verðlaun til þeirra fyrir gegndarlausa græðgi og flottræfilshátt. Það yrðu heldur slæm siðferðileg skilaboð út í samfélagið og engin sátt myndi nást um slíkan gjörning. Ennfremur má telja það nokkuð víst, að friðurinn í landinu yrði þá sundur slitinn, því að ekki er nú ástandið sérlega stöðugt fyrir.
Flokkssystkin Tryggva Þórs virðast vera hæstánægð með þessar tillögur um niðurfellingu skulda fyrir þá sem lifðu langt um efni fram á neyslufylleríi, sem og fyrir sterkefnaða óráðsíumenn, enda er sjálfgræðsla æðsta boðorðið í þessum Flokki.
En þó fyrirfinnast nokkrir í stjórnmálahreyfingunni, sem efast um að nægilega sé tekið tillit til réttlætissjónarmiða í þessu máli. En því er til að svara, að Frjálshyggjan spyr ekki um réttlæti, heldur ríkir þar auðræðið eitt, blátt og nákalt.
Þetta kosningamál er gríðarlega alvarlegt, því að illa gæti farið fyrir þjóðinni, ef þessar björgunaraðgerðir verða ekki framkvæmdar með skynsemi og réttlæti í huga. Ef slíkt gerðist þá gæti orðið algert siðrof í landinu, því að þeir sem ekki tóku þátt í kaupæðinu geta ekki horft uppá, að óráðsíufólki sé hyglað fyrir ábyrgðarleysi sitt. Þessu fólki finnst örugglega að það eigi frekar skilið að hljóta umbun fyrir sína ráðdeild og ábyrga hegðun á þessu geggjaða tímabili.
Það er búið að stórlaska ímynd okkar og orðspor á erlendri grundu. Ætlum við einnig að eyðileggja samkennd og samheldni þjóðarinnar?
Ég vona að þið takið þetta málefni til rækilegrar skoðunar og umfjöllunar og veitið almenningi heiðarlegar upplýsingar um það, því að mikið er í húfi.
Kveðja, Tryggvi Gunnarsson