fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Eignast Líbýumenn loks Kaupþing í Lúxemborg?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 5. febrúar 2009 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Þórisson er höfundur þessarar greinar.

— — —

Undanfarnar vikur hefur verið hljótt um Kaupþing í Lúxemborg og engar fregnir borist af samningaviðræðum um yfirtöku bankans. Í Belgíu hefur innlendur banki, Landbouwkrediet, tekið yfir viðskiptabanakstarfsemi Kaupþings. Jafnframt hefur Landbouwkrediet (“Búnaðarbankinn”) ráðið til sín hluta þeirra 46 starfsmanna sem áður unnu hjá Kaupþingi í Belgíu.

En hvað með djásnið í Lúxemborg, bankann sem menn hafa líkt við “spegilinn í ævintýri Lísu í Undralandi”?

Skömmu eftir að bankinn fór í þrot, bárust þær fréttir að tugir áhugasamra kaupenda ættu í samningaviðræðum við bankann og yfirvöld í Lúxemborg.

Fljótt fækkaði í þessum hópi og að lokum  stóð eftir olíufjárfestingasjóður Líbýu, LIBYAN INVESTMENT AUTHORITY (LIA).

Libyan Investment Authority er sjóður sem hefur yfir að ráða 70 milljörðum dollara til fjárfestinga. Þetta er haft eftir forstjóra sjóðsins Mohamed Layas á fréttavef African Economic Group Organization þann 13. janúar s.l.

Í ýmsum Evrópulöndum hafa menn haft áhyggjur af gríðarlegum fjárfestingum olíuríkjanna, m.a. Líbýu, Katar og fleirri, í m.a. bönkum,  en líbýumenn eiga til dæmis einn stærsta hlutinn í ítalska bankanum UniCredit SpA.

Á vef AEGO er haft eftir Mohamed Layas forstjóra LIA, að fyrirhugað sé að birta fjárfestingastefnu sjóðsins fljótlega,  og að markmiðið sé að sannfæra löggjafa annarra ríkja um  að markmið líbýumanna sé “að fjárfesta í góðum viðskiptatækifærum og að pólitískir hagsmunir verði ekki látnir ráða ákvörðunum um fjárfestingar eða stjórn þeirra”.

Tilraunir til þess að komast í samband við LIA hafa ekki borið árangur. Enn sem komið er hefur sjóðurinn aðeins skrifstofur í Trípóli en fyrirhugað er að opna skrifstofur í London á næstu mánuðum.  Í desember s.l. festi LIA kaup á skrifstofubyggingu í London fyrir um 180 milljónir dollara og þar verða höfðustöðvar sjóðsins í Evrópu. Einnig eru uppi áform um að opna skrifstofu í New York.

Dregur til tíðinda

Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi sjálfu virðist nú eitthvað vera að rofa til í samningum við LIA.

Þann 2. febrúar s.l. sendi Kaupthing Bank Luxembourg S.A. viðskiptavinum sínum bréf,  til þess að upplýsa þá um að “jákvæðra” tíðinda sé að vænta um örlög bankans;

As we have informed you before, through our website or account manager, a memorandum of understanding has been signed with a Libyan sovereign wealth fund, aiming at the continuity of the activities of the Bank. This memorandum is still subject to two main conditions, which is the restructuring of the interbank loans and the approval of our mother company Kaupthing Bank hf.

An important milestone was reached this week when the Luxembourg Supreme Court took a decision which simplifies greatly the restructuring of the interbank loans. Furthermore, we are in an ongoing positive dialogue with Kaupthing Bank hf concerning the final approval of the take over.

As soon as the Bank becomes operational again, the aim of our “soon-to-be” new owners will be the re-establishment of our Private Banking and Asset Management Services.

We would like to use this opportunity to thank you for the trust and understanding that you have shown during these difficult times. We assure you that we are doing our utmost to finalize the restructuring of the Bank as soon as possible, so that we can resume normal business relationship with you.

Undir þetta bréf rita nöfn sín þeir Magnús Guðmundsson, CEO og Björn Jónsson, Deputy CEO,  fyrir hönd Kaupthing Bank Luxembourg S.A.

Formlega er Kaupþing Luxemborg í eigu Kaupþings á Íslandi, og þar með íslenska ríkisins.

Það verður ekki rakið hér hvaða viðskipti hafa farið í gegnum Kaupþing í Lux, en myndlíkingin um að bankinn sé, “eins og spegilinn í Lísu í Undralandi” ætti að gefa til kynna hvers kyns er.

Í bankanum eru þúsundir leynireikninga íslendinga jafnt einstaklinga sem fyrirtækja, vel varðir af lögum Lúxemborgar um bankaleynd.

Í ofangreindu bréfi er tekið fram að fyrirhugað sé að tryggja óbreytta starfsemi “Private Banking and Asset Management Services”, þ.e. einkabankaþjónustu og eignaumsýslu, og þar með leynireikninga.

Víst er að margur auðmaðurinn bíður í ofnvæi eftir því að leysa kreditkort sín úr frostinu og fá aftur aðgagang að sjóðum sínum,  en miklar sögusagnir hafa verið af auðmönnum í lausafjárvanda vegna stöðunnar í Lúxemborg.

Það er greinilegt að menn eru ekki rólegir á meðan bankinn er enn í eigu íslenska ríkisins og tilgangur starfsmanna bankans með því að senda út þetta bréf er að róa reikningshafa, því nú er von til þess að bankinn komist í hendur aðila sem ekki munu hafa hagsmuni af því að opinbera viðskiptaleyndarmál bankans.

Það er athyglisvert að landar okkar og starfsemenn fyrirtækis sem er í  eigu íslenska ríkisins skuli hafa hagsmuni af því að þetta fyrirtæki komist í hendur Líbýumanna!

Er ekk ástæða til þess að reyna að stoppa þetta?

Hvað hefur verið gert til þess að komast í þau gögn sem bankinn geymir?

Hvað hefur skilanefnd Gamla Kaupþings gert til þess að fá upplýsingar um viðskipti útibúsins í Lúxemborg?

Er ekki eðlilegt að móðurfélagið leggist á eitt með rannsóknarnefndinni?

Hvað hefur skilanefnd gert til þess að tryggja hagsmuni sína í þessu máli?

Hyggst skilanefndin samþykkja kauptilboð líbýumanna án skilyrða?

Hvar er efnahagsbrotadeild?

Dómsmálaráðuneytið?

Utanríkisráðuneytið?

Hvar eru áður auglýstar reglur um gagnsæi og jafnræði við sölu eigna úr þrotabúum bankanna?

Þarf þetta mál ekki að koma til kasta Alþingis?

Hér má sjá bréfið sem Kaupþing í Lúxemborg sendi viðskiptavinum.

letter_client_0202091.pdf

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu