
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um sögu Keflavíkurflugvallar og herliðsins sem þar sat. Friðþór Eydal hefur verið að skrásetja þessa sögu, leiðir okkur um vallarsvæðið og segir sögur þaðan.
Einar Már Guðmundsson segir frá uppáhaldsbókum sínum, en ljóðskáldið Kristín Eiríksdóttir flytur kvæði eftir sig.
Páll og Kolbrún fjalla um bókina Í þokunni eftir Philippe Claudel og Apakóng á silkiveginum, úrval kínverskra frásagnarbókmennta sem Hjörleifur Sveinbjörnsson tók saman.
Bragi talar um hinn frábæra útvarpsmann Jón Múla Árnason.