
Eitt sinn var rætt um að erlendir bankar keyptu hluti í íslensku ríkisbönkunum þegar þeir yrðu einkavæddir. Á einhverjum tímapunkti sýndi sænski Enskilda bankinn Landsbankanum áhuga.
En svo mátti þetta ekki. Það varð að koma bönkunum í hendur á vildarvinum stjórnmálaflokkanna.
Carsten Valgreen, hagfræðingur og áhugamaður um Ísland, segir í þessari frétt að það hefði verið til bóta ef stórir erlendir bankar hefðu verið hluthafar í íslensku bönkunum.