
Ég segi eins og fyrrverandi ráðherra og álitsgjafi kemst oft að orði:
Þetta er ekki traustvekjandi.
Már Guðmundsson, nýr seðlabankastjóri, fullyrðir að ekkert hafi verið athugavert við peningastefnuna.
Meinar hann þetta, eða er þetta samstaða með gömlum starfsfélögum?
Jú, og svo má rifja upp að Már er einn af höfundum peningastefnunnar.
Hún leiddi til þess að vextir urðu alltof háir sem laðaði að sér erlent fjármagn í ótæpilegu magni, gengi krónunnar varð alltof hátt, kaupmáttur var líklega falskur, fólk og fyrirtæki skuldsettu sig í erlendum gjaldmiðlum en grundvöllur útflutningsfyrirtækja og nýsköpunar versnaði til muna.
Þetta er ein meginorsökin fyrir ruglástandinu sem hér var í gangi fyrir hrun – og hlaut að enda með skelfingu.
Væri ekki nær að seðlabankastjórinn gerði af heiðarleika og hreinskiptni upp við peningastefnuna?