fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Í skjóli mömmu

Egill Helgason
Fimmtudaginn 9. júlí 2009 07:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ari Matthíasson skrifar þessa grein.

— — —
Hvað gerist þegar samfélag mölbrotnar eins og íslenskt samfélag virðist ætla
að gera nú í kjölfar bankahrunsins, eða hins svokallaða bankahruns? Ég hef
verið að velta þessu fyrir mér nú þegar ég hef verið svo lánsamur að sækja
sama íþróttaviðburð og margir af helstu gerendur í hruninu. Um síðustu helgi
var ég þannig staddur á pollamóti á Akureyri og sá þar sama daginn á sama
blettinum þá Sigurð Einarsson, Pálma Haraldsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og
Bjarna Ármannsson. Upplitið var misjafnt á mönnum, eins og gengur, og
eitthvað var t.d. Bjarni daufur á meðan Sigurður beitti fyrir sig túberaðri
og draktklæddri móður sinni þar sem hann sat á stól við hliðarlínuna á meðan
við sauðsvartur almenningurinn stóðum nýplokkuð af öllu okkar sparifé og
framtíðartekjum af völdum mannsins sem glotti við tönn í skjóli mömmu.

En ég ætlaði ekki að tala um þetta, því þessir menn fá það réttlæti sem við
íslenskir skömmtum þeim eftir getu okkar og dug þeirra embættismanna sem
útdeila slíku.
Mig langar að tala um alla hina sem bera þó nokkra ábyrgð á þessu öllu saman
og eru enn að störfum hafi þeim tekist að sleikja sárin. Hér er ég að tala
um þá sem hjálpuðu hinum forríku við að borga minni skatta en þeim bar og þá
sem hjálpuðu sama liði að koma peningum undan svo engin von væri til þess að
þeir peningar færu upp í tjónið sem almenningur þarf að bera af gripdeildum
þeirra.

Nú háttar nefnilega þannig til að margir af efnilegustu sonum og dætrum
þessa lands hafa á undanförnum árum lært viðskipti, lögfræði og hagfræði og
farið svo að vinna við brask sem á meira skylt við skipulagða glæpastarfsemi
en heiðarleg viðskipti, réttargæslu eða leit að hagfelldustu lausnum við
rekstur fyrirtækja. Þannig hefur vilji og ásetningur löggjafans Alþingis
verið hafður að engu og einnig tilgangur laga um viðskipti og rekstur
samfélags.

Við höfum einnig séð hvernig hinir skipulögðu glæpahópar sem kenndir hafa
verið við Samson, Baug, Existu, Fons og hvað þessir klúbbar heita, hafa
einnig borið fé á stjórnmálaflokka til þess að tryggja sér eftirlitsleysi og
linku við framfylgd laga. Því miður standa þessir gæjar okkur svo nærri og
við þekkjum þá og höfum hitt, að við eigum erfitt með að trúa upp á svona
snyrtilega menn að þeir séu í raun þeir siðvillingar sem nú er að koma í
ljós. En þeir eru bara fronturinn og þeir sem skipulögðu svikin.  Með í för
voru margir millistjórnendur sem voru í hlutverki Consigliere og caporegime,
svo líkingar úr velþekktu skipulagi glæpafélaga sé notuð. Þetta eru
lögfræðingar og endurskoðendur sem unnu við það í fullu starfi að fela
sporin og flækja vefinn til þess að erfiðara væri að henda reiður á hver
ætti hvað og gera ómögulegt fyrir ríkisvaldið að sinna eftirliti sínu og
skattheimtu. Hver er annars tilgangur þess að stofna flókið net
eignarhaldsfyrirtækja á Jómfrúreyjum og í Lúxembúrg svo dæmi séu tekin?

En það voru fleiri sem komu að spilinu. Þar má nefna alla þá hressu
einstaklinga sem keyptu sér Lexusa og Rólexa og fóru ekki í frí öðru vísi en
að það væri til Aruba og þá á fimm eða sex stjörnu hótelum og á
einkasnekkjum. Þeir gerðu þetta fyrir allar þær þóknanir og bónusa sem menn
fá fyrir að setja saman díla og pakka þeim inn svo þeir séu lánshæfir. Hvaða
menn voru það annars inni í bönkunum sem komu að lánveitingum til kaupa á
Windham prentsmiðjunni í Englandi sem tapaði milljörðum á fyrsta árinu? Eða
til kaupa Eimskips á Innovit? Eða til kaupa Sjóvár á fasteignum í Kína? Og
svo mætti lengi telja. Það voru að meira segja fótgönguliðar frá bönkum og
fjármálafyrirtækjum sem hjálpuðu íslenskum sjávarútvegi að skuldsetja sig
svo óskaplega og henda peningunum í vonlaus kaup á hlutabréfum þegar enginn
annar vildi slíkt, að mörg munu engan veginn standa undir skuldunum.

Og þá komum við að kjarna málsins. Á meðan stórlaxarnir fara í steininn eins
og stórlaxar eiga að gera þegar upp um þá kemst, þá munu hinir sem undir
þeim sátu og fyrir störfuðu, halda áfram þar sem frá var horfið við að
braska á svig við lög og skatta. Við erum þegar farin að sjá dæmi um slíkt
enda eru hinir hressu rólexar farnir að stunda gjaldeyrisbrask í svo stórum
stíl að krónan veikist þrátt fyrir mikinn afgang af milliríkjaverslun. Þetta
gera hinir siðvilltu þó að samfélagið beri þungan kostnað og miklar byrðar
vegna erlendra skulda. They don´t give a shit!

Altso: Það er fjöldi manna sem hefur vanist því að vera með mikið
ráðstöfunarfé sem fékkst með vafasömu braski við að höndla með pappíra,
helst til hliðar við hefðbundið hagkerfi, og því að líta á allan almenning
sem fer að lögum og borgar skatta og skyldur sem sauðfé sem þarfnist
rúningar.  Þessir menn eru enn að störfum og munu stefna á að hrifsa til sín
alla bestu bitana sem eftir eru í þrotabúi Íslands. Nema að við komum í veg
fyrir það. Besta leiðin til þess er að endurhæfa þá, kannski með því að
senda þá í fisk á Flateyri eða listvinnslu og bóklestur að Kvíabryggju.
Einhverjir eiga hins vegar ekkert betra skilið en að beygja sig eftir
sápunni á Hrauninu í nokkur ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins