
Helgi Seljan flutti mjög merkilega fréttaskýringu í Kastljósi gærkvöldsins um alvarlega brotalöm í kvótakerfinu.
Eða eigum við að kalla það fyrirkomulag sem býður upp á óeðlilega viðskiptahætti og mjög sérkennilegar veiðar – kvóti er til dæmis færður á skip sem hafa enga möguleika til að veiða hann, enda er það ekki ætlunin.
Fréttaskýringin byggir á ítarlegum rannsóknum tveggja háskólanema við Háskólann á Bifröst, Þórðar Más Jónssonar og Finnboga Vikars.
Í innganginum segir:
„Þessar tilfæringar hafa einkennilegar birtingarmyndir; á smátrillu í Eyjum er skráður kvóti á alþjóðlegu hafsvæði, línubátur er er skráður með heljarinnar rækjukvóta og lög sem skylda menn til að veiða eru auðveldlega sniðgengin með vitund yfirvalda. Svo er komið að kvóti í sumum tegundum virðist varla þjóna öðrum tilgangi en að auðvelda mönnum að leigja meira frá sér af öðrum tegundum. Erfitt er að fá þennan óveidda kvóta til sækja aflann á sjó – það er meiri hagur í því að höndla með hann óveiddan.“
Smellið hér til að horfa.