
Einu sinni var ég með mikla bíódellu.
Eitt árið taldist mér til að ég hefði farið 155 sinnum í bíó. Ég var semsagt í kvikmyndahúsi næstum annan hvern dag.
Samkvæmt núverandi verðlagi myndi kostnaðurinn við þetta líklega vera í kringum 150 þúsund.
Þetta hefði getað orðið mun dýrara ef ég hefði til dæmis verið svo fínn með mig að í hvert skipti hefði ég leigt bíósalinn undir sjálfan mig.
En það er eiginlega eina leiðin sem mér dettur í hug til að gera þetta áhugamál mjög dýrt – láta það til dæmis kosta 17 miljónir.
Nema ég hefði haft svo dýran smekk að ég hefði flogið til útlanda í hvert sinn sem mig langaði í bíó og horft á myndirnar þar.
Það hefði verið sannkölluð bíódella.