
Það væri mikil bjartsýni að halda að mótmælin í Íran muni leiða til falls klerkastjórnarinnar.
Það mun taka lengri tíma.
En maður getur vonað.
Íran er mikið menningarland, þótt einhæfar fréttir sem berast þaðan segi annað.
Þar er öflug kvikmyndagerð og bókmenntir, samfélag sem bíður þess að springa út þegar kúguninni léttir – að mörgu leyti frábrugðið því sem gerist í múslimalöndum þar sem arabíska er töluð.
Því miður eru sum þeirra eyðimörk í menningarlegum skilningi.