fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Eyjan

Skuggaprýði

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. apríl 2009 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húsið við Vatnsstíg þar sem hústökufólkið settist að var eitt sinn kallað Skuggaprýði.

Það átti að víkja fyrir glæsibyggingum, segir verktakinn sem hafði keypt upp alla húsalengjuna og líka hús á horni Laugavegar og Vatnsstígs.

Hann segir að borgin hafi komið í veg fyrir þessi áform.

En hver í ósköpunum er að fara að kaupa glæsihús í miðbænum – íbúðir eða skrifstofur í þeim?

Á þessum tíma.

Er ekki betra að hafa líf í þessum gömlu húsum en að láta þau grotna niður.

Þessi bloggfærsla Einars Karls Friðrikssonar er ágætt innlegg í umræðuna:

„Það er gott að þetta brýna mál komist aftur á dagskrá. Töluvert var rætt fyrir tæpu ári um auð hús í miðborginni, en í skýrslu slökkviliðsstjóra frá mars 2008 kom fram að 57 hús stóðu auð að öllu leyti eða að hluta. Í apríl í fyrra var lögð fram samantekt á fundi skipulagsráðs borgarinnar þar sem kom fram að  37 hús voru auð í miðborginni. Þar stóð að fyrirhugað væri að rífa 18 þessara húsa og að gera ætti upp tíu. Níu hús voru sögð standa auð vegna eigendabreytinga. 17 húsanna sem tilgreind voru í samantektinni voru í eigu þriggja félaga: Samson Properties (5 hús), ÁF-húsa ehf. (5 hús) og Festa ehf. (7 hús).

Fleiri fyrirtæki mætti nefna, svo sem Stafna á milli ehf. sem töluvert var í fréttum 2006-07. Áhugasamir geta gúglað.

Eru þetta ekki hústökumennirnir sem þarf að varast?

Hvernig eru ástand og horfur húsanna 57 nú?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Samtök atvinnulífsins hafa örlög kjarasamninga í hendi sér

Orðið á götunni: Samtök atvinnulífsins hafa örlög kjarasamninga í hendi sér
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Inga móðgaðist í óundirbúnum fyrirspurnartíma: „Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“

Inga móðgaðist í óundirbúnum fyrirspurnartíma: „Er ekki allt í lagi? Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga