
Það er ansi langt gengið hjá Þorgerði Katrínu og Bjarna Benediktssyni að kenna Steingrími J. um að hér kann að vera óhjákvæmilegt að hækka skatta – og um að hér séu fyrirtæki meira eða minna komin hendur ríkisins.
Það eru ekki nema tveir dagar síðan Geir Haarde baðst afsökunar á síðustu einkavæðingu.
Í raun er þetta ekki annað en lýðskrum.
Þorgerður Katrín talaði í ræðu sinni um sögusagnir um hjónaband sitt og um fyrirtæki eiginmanns hennar.
En á sama tíma mærði hún Davíð Oddsson.
Ég get staðhæft – og þetta veit Þorgerður – að mest af þessum söguburði var innan Sjálfstæðisflokksins og kom ekki síst frá stuðningsmönnum Davíðs.
Ekki síst söguburðurinn um fyrra málið. Ég hef aldrei heyrt neinn sem ekki er sjálfstæðismaður minnast á það.