
Hér er ræða Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra FME, þar sem hann ræddi orðspors- og ímyndarkrísur.
Hann er að tala á fundi hjá Viðskiptaráði, eftir að birt hefur verið skýrsla Friðriks Baldurssonar og Richard Portes þar sem því var haldið fram að allt væri í sómanum hér í bankakerfinu.
Jónas var þess fullviss, líkt og ríkisstjórnin síðasta, að íslenska fjármálakerfið hafi fyrst og fremst átt við ímyndarvanda að stríða.
Hann segir í ræðunni, sem er frá 5. desember 2007, að haldnir hafi verið um hundrað fundir með erlendum aðilum vegna þessa og að mjög mikill tími hafi farið í þessa fundi.
Hér er svo annað skjal af vef Fjármálaeftirlitsins. Þetta er ræða Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings, á ráðstefnu hjá FME. Þar útlistar Sigurður hugmyndir sínar um hlutverk eftirlits með fjármálafyrirtækjum.
Segir meðal annars að FME sé ekki að láta formlegheitin þvælast fyrir sér:
“In my opinion, and that is an opinion I have formed after dealings with
authorities in more than ten countries, the financial and regulatory
authorities in Iceland and in Luxembourg are among the most effective.
That may come as a surprise to some of you, but I can support my opinion
with some arguments. Here in Iceland as in Luxembourg you have up to
now been able to reason with the FSA’s, get guidance and come to
understandings where substance but not formalities have been in the
forefront. In that way you build up trust and confidence which is the core
quality in all business dealings.”
Hér er svo ein enn. Þarna er ræða Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra á SFF-deginum í fyrra. Þar mærir hann meðal annars starf nefndar sem Sigurður Einarsson veitti forstöðu og fjallaði um Ísland sem fjármálamiðstöð.
Ræðu Björgvins lýkur á svofelldum orðum.
„Ég óska ykkur öllum hjartanlega til hamingju með daginn. SFF daginn.“
Ætli verði mikið um dýrðir á SFF deginum þetta árið?