
Viðskiptaráð er bandalag stóru samsteypanna og eignarhaldsfélaganna sem hafa eyðilagt íslenskt efnahagslíf.
Með græðgi sinni og ófyrirleitni.
Nú stígur fram framkvæmdastjóri ráðsins og varar við stöðnun hér – vegna þess að fólk dirfist að setja út á arðgreiðslur í fyrirtækjum.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur haft uppi sama málflutning.
Það er ekki nema vika síðan formaður Viðskiptaráðs, framkvæmdastjóri Exista, steig fram og sagði að auðugt fólk myndi flytja peningana sína úr landi.
Hafa þessir menn ekkert lært?