
Endalok Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis eru dapurleg.
Þetta var fyrrum stolt félag, ein af burðarstoðum bæjarlífsins í Reykjavík. Rómað fyrir gott starfsfólk og góða þjónustu. Nú blasir atvinnumissir við þessu góða fólki.
Menn gerðu þá merku uppgötvun að ekki mætti neins staðar vera „fé án hirðis“. Það fór fram hatrömm barátta um þennan sparisjóð – enda var mottóið að engin vermæti mætti láta í friði. Allt skyldi ryksugað upp.
Það var sagt að stofnanir eins og SPRON væru svo óhagkvæmar vegna smæðar sinnar. Seinna kom í ljós að það voru stóru bankarnir sem voru óhagkvæmastir.
Seinast var farið í hlutafjárútboð hjá SPRON árið 2007. Um það leyti seldu stjórnarmenn í SPRON hluti sína á laun. Trú þeirra á fyrirtækinu var ekki meiri en svo.
Nú er bankinn kominn inn í Kaupþing. Þangað hafði honum reyndar verið stefnt í langan tíma af Guðmundi Hauksssyni sparisjóðsstjóra sem áður vann hjá Kaupþingi og var alltaf í klíkunni í þeim banka.
Guðmundur var stjórnarmaður í Exista og Erlendur Hjaltason sem er forstjóri Exista var stjórnarformaður SPRON eins og lesa má hér.
Gengi SPRON eins og fleiri sparisjóða féll með Existabréfunum sem höfðu verið keypt.