
Jóhanna þráaðist lengi við, enda sögð vera einhver þrjóskasta kona á Íslandi, en þau fengu hana loks til að draga vagninn.
Voru búin að biðja hana mikið og lengi, og segja henni að hún þyrfti ekki að vera formaður nema að nafninu til. Þau mundu sjá um allt hitt fyrir hana.
Jóhanna vill einbeita sér að því að vera forsætisráðherra. Miðað við skoðanakannanir verður hún það áfram eftir kosningar.
Það er spurning hvað hún á mikið í 31 prósents fylgi Samfylkingarinnar í nýjustu skoðanakönnun.
Sjálfstæðisflokkurinn fær útreið þrátt fyrir prófkjör helgarinnar – eða kannski vegna hennar.
Það er spurning hvernig Bjarni Benediktsson mun virka gegn heilagri Jóhönnu. Hann er alls ekki óumdeildur innan Sjálfstæðisflokksins – og spurning hvernig hann höfðar til óákveðinna kjósenda.