
Hér er lýsing Morgunblaðsins á stórkostlega merkilegum viðskiptum.
Maður er eiginlega gáttaður yfir hugmyndafluginu.
Annars er á mörkum þess að hægt sé að kalla þetta lán – er ekki nær að tala um gjöf.
„Félag í eigu tólf stjórnenda og starfsmanna Baugs Group, BGE eignarhaldsfélag, hafði lánað starfsmönnunum 3,4 milljarða króna til þess að kaupa hlutabréf í Baugi í árslok 2007. Lánin voru fjármögnuð með lánum frá Kaupþingi og veitt gegn veðum í bréfunum sem keypt voru í Baugi. Baugur hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum og því eru hlutabréfin verðlaus. Kaupþing getur því ekki innheimt lánveitingarnar.
Samtals námu eignir BGE 5,3 milljörðum króna í lok árs 2007 og höfðu þá tvöfaldast frá árinu áður. Eignir félagsins voru tvær; annars vegar lánveitingarnar til starfsmanna Baugs og hins vegar 2,35 prósent eignarhlutur í Baugi sem var bókfærður á 1,9 milljarða króna.
Stefán Hilmarsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs, segir að BGE hafi haldið utan um kaupréttarsamninga starfsmanna félagsins. „Félagið tók lán hjá Kaupþingi banka til að fjármagna sig og lánaði síðan áfram til starfsmanna Baugs. Veðin voru í bréfunum sjálfum.“