

Í einni bókinni um múmínálfana kemur við sögu hemúllinn sem safnar frímerkjum og er í vandræðum vegna þess að hann er búinn að safna öllum frímerkjum í heiminum.
Hann er í öngum sínum vegna þessa, en tekur gleði sína þegar honum er bent á að hann geti farið að safna einhverju öðru.
Til dæmis blómum eða fiðrildum
Kári hefur verið að safna spjöldum með myndum af fótboltamönnum. Þetta er æði meðal strákanna í skólanum hjá honum.
Söfnunin hefur gengið mjög vel hjá Kára. Hann á möppu með fullt af fótboltaspjöldum.
En í síðdegis í gær varð hann mjög áhyggjufullur.
– En pabbi, ef ég er búinn að safna öllum fótboltamönnunum, hvað á ég þá að gera?
– Ja, þá verðurðu bara að skoða safnið þitt.
– En það er ekki eins gaman.
– Eða safna einhverju öðru.
– En hverju???