
Ég verð að viðurkenna að stundum finnst mér skýringar stjórnmálafræðinga á pólitíkinni heldur flatneskjulegar. Sjónarhornið helsti þröngt.
Ólafur Þ. Harðarson talar um að hafi orðið kynslóðaskipti.
Jú, Geir Haarde, Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún eru farin á braut.
Við það gerist að þeir sem vorum næstir í tröppunni færast upp.
Það eru nú öll tíðindin.
Aðalfréttin er dræm þátttaka í prófkjörunum. Það er bara harðasti kjarninn í flokkunum sem er að kjósa í þessum prófkjörum, og fólk sem var með einhverjum hætti dröslað á kjörstað (með rútum úr menntaskólum).
Þetta er sá hópur kjósenda sem hefur ekki hugmyndaflug til að gera breytingar.