fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Harðar tekið á hvítflibbabrotum

Egill Helgason
Fimmtudaginn 12. mars 2009 07:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í þessari grein í New York Times kemur fram að saksóknarar í Bandaríkjunum búa sig undir stórfellda átak gegn fjármálaglæpum.

Eva Joly talaði um að á fundi heimsleiðtoga, G 20 fundinum svokallaða, í London í apríl yrði rætt um aðgerðir gegn skattaskjólum. Hún hefur sjálf verið í sambandi við bandaríska öldungadeildarþingmenn sem hafa unnið í þessu máli – og eru nátengdir Obama forseta.

Hún talaði um að nú gæti verið tækifærið til að fá upplýsingar úr skattaskjólum – líka fyrir Íslendinga – vegna geysilegs alþjóðlegs þrýstings á þau.

Í morgun mátti lesa að fyrsta skattaskjólið sé fallið, Liechtenstein.

Ég spurði hana líka hvort rétt væri að selja Kaupþing í Lúx til Líbýumanna. Hún varð frekar svona dimm á svipinn.

Sagði svo sögu af því þegar braust út eldur í skjalageymslu þegar hún var að rannsaka mál Crédit Lyonnais bankans. Eða réttar sagt, það var kveikt í, sagði hún.

Punktur saliens: Við skulum ekki gera ráð fyrir því að þeir sem liggja undir grun fyrir brot fylgi leikreglunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“