
Þetta er mjög mikilvægt mál – að taka gjaldþrota fyrirtæki sem við getum ekki án verið út úr bönkunum.
Og það er ekki síður mikilvægt að kveðið er á um að eignasýslufélaginu skuli slitið innan fimm ára.
Þegar þetta er orðið að veruleika þarf að hefjast handa við endurskipulagningu og endurfjármögnun bankakerfisins.
Eins og staðan er núna er ekki hægt að fá lánsfé til neins á Íslandi.
Það er allt lokað.
Og svo þarf líka að lækka vextina.