
Ég sé að bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir skrifa varnarræðu um sjálfa sig í Moggann í dag.
Þetta er grein af því taginu þar sem má segja að sé skautað létt yfir.
Tengsl Kaupþings og Exista eru sérstakt rannsóknarefni. Exista átti Kaupþing og Kaupþing lánaði Exista.
Það er sagt að höfundurinn að plottinu hafi verið Sigurður Einarsson. Hann fann grásleppukarlana Lýð og Ágúst og dubbaði þá upp í þetta hlutverk.
Sambandið milli bankans var – og nú ætla ég að sletta grísku til að valda ekki aðdáendum mínum vonbrgðum – einkenndist af því sem kallast συνβιωσις.
Það var sýmbíótískt.
Annar angi af þessu sem er athugunarverður eru sparisjóðir, ekki síst SPON, og Kaupþingsmaðurinn Guðmundur Hauksson sem þar varð bankastjóri – og sat í stjórn Exista.