
Ríkisstjórnin segist ætla að skapa 4000 ný störf.
Það er reyndar merkilegt að mikið af þessu hefur staðið til um nokkra hríð.
Og að stór hluti þessara starfa tengjast áliðnaði – sem Vinstri grænir þola illa.
Ennfremur er spurning um hvort verði af sumu. Í kjölfar fjármálakreppunnar er að koma framleiðslukreppa í heiminum.
Bílaiðnaðurinn er að hrynja og spurn eftir áli minnkar, á sama tíma og miklar birgðir eru til af málminum.
Nei, það er ansi mikil kosningalykt af þessu.