fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Listamannalaun og ríkisstjórnir

Egill Helgason
Laugardaginn 7. febrúar 2009 10:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Laxness var á listamannalaunum. En svo þegar hann gekk fram af fólki var hann sviptur laununum.

Við höldum uppi kerfi styrkja til lista. Það er kerfi sem hefur verið lengi við lýði.

Þetta er að sönnu ekki nýnæmi í heiminum. Til dæmis hafa listir líklega hvergi verið meira styrktar en á Ítalíu endurreisnartímans.

Auðvitað má deila um þetta fyrirkomulag. Sumir segja að það eigi ekki að púkka undir það sem ekki selst á frjálsum markaði.

En þá höfum við ekkert Þjóðleikhús, enga óperu, ekkert listasafn, enga sinfóníuhljómsveit.

Ágúst Einarsson hagfræðingur hefur fært rök fyrir því að listin margborgi sig. Umsvifin í henni séu svo mikil að menningin sé mikilvæg atvinnugrein.

Og það er listin sem lifir meðan flest annað gleymist. Ars longa, vita brevis. Hún er löng og lífið er stutt.

Gildi samfélaga í sögunni er gjarnan dæmt út frá listsköpun, bókmenntum, höggmyndum og málverkum, tónlist og byggingarlist. Við lítum upp til þeirra samfélaga þar sem listin blómstrar. Við munum eftir kóngum Noregs og Sturlungum vegna þess að Snorri og Sturla skrifuðu um þá.

Jú, listamenn njóta ríkisstyrkja til að geta helgað sig skriftum, myndsköpun eða tónsmíðum.

Mér hefur ekki dottið í hug að í því felist einhvers konar samkomulag eða skuldbinding um að styðja ríkisstjórnir.

Eða að listamenn sem fái slík laun megi ekki gagnrýna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu