fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Frjálshyggja í kreppu

Egill Helgason
Föstudaginn 6. febrúar 2009 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frjálshyggjumenn ætla að snúa vörn í sókn. Birta auglýsingu í blöðunum. Segjast ekki kannast við ný-frjálshyggju.

Við þessu má segja eftirfarandi:

Þeir sem stóðu að markaðsvæðingu samfélagsins voru menn sem játuðu frjálshyggju. Meira að segja fiskurinn sjónum var einkavæddur og syndir nú um með skuldabagga á bakinu.

Hugmyndafræði hins frjálsa markaðar hefur verið dómínerandi í heiminum. Það var eiginlega búið að lýsa yfir endanlegum sigri hennar. Spurningin um hvort útfærslan hafi verið nógu nákvæm er dálítið eins og þegar kommúnistarnir sögðu að kenningin væri víst góð, hún hefði bara ekki verið framkvæmd nákvæmlega rétt.

Hugmyndafræðin byggði á því að allur rekstur sé betur kominn í höndum einkaaðila, í formi hlutafélaga, en ríkisins. Þeirri hugmynd var nákvæmlega framfylgt. Íslenskir sparisjóðir eru ágætt dæmi um það.

Hugmyndafræðin byggði á deregulation, því að losa um reglur og höft. Það er ekki nóg að telja bara upp reglugerðir í blaðaauglýsingu. Þeirri stefnu var framfylgt á Íslandi og víða um heim að losa um hömlur á fjármagninu.

Reglur voru til staðar en þeim var illa fylgt eftir. Má benda á að framkvæmdastjóri Fjármálaeftirlits og Seðlabankastjóri eru/voru báðir baráttumenn fyrir frjálshyggju. Sá grunur er uppi víða um lönd að það hafi beinlínis verið að ráðnum hug hvað eftirlitsstofnanir voru veikar og stóðu sig illa.

Hér segist mikil frjálshyggjukona ekki kannast við ný-frjálshyggju. En hún þarf ekki að leita langt yfir skammt, hér er til dæmis grein á Wikipediu þar er fjallað um neo-liberalisma og meðal annars nefnd til sögunnar Margaret Thatcher, Ronald Reagan og Augusto Pinochet.

En ef frjálshyggja var ekki vandamálið, ja, þá hljóta það að vera frjálshyggjumennirnir.

Hugmyndastefnur rísa og hníga. Blómaskeið frjálshyggjunnar má segja að hafi staðið frá 1979 þegar Thatcher varð forsætisráðherra Bretlands (á sama tíma ruddist fram önnur hugmyndafræði í Íran þegar Khomeini komst til valda) og fram að lánsfjárkreppunni sem hófst 2007.

Ef litið er á málið í ljósi hugmyndasögunnar má ætla að frjálshyggja muni eiga litlu fylgi að fagna næstu áratugina.

Það eru aðeins teoríuhestar úr frjálshyggjunni sem koma ekki auga á þetta. Fyrir þá sem sjá aðeins stærri mynd liggur það í augum uppi að í raun þyrftu frjálshyggjumenn að fara í naflaskoðun og leggjast yfir kenningar sínar.

Svo má reyndar nefna að Andríkishópurinn bregst yfirleitt mjög illa við ef talað er um að hrófla við valda- eða peningamönnum. Ég man varla til þess að á vef þeirra hafi enn birst ein einasta grein þar sem segir að kerfið sem hrundi í byrjun október hafi verið gallað – eða ónýtt. Hugmyndir um aukið lýðræði eða meiri aðkomu almennings að ákvörðunum eru yfirleitt afgreiddar sem heimska í Vef-Þjóðviljanum.

Kannski má segja að þessi hópur aðhyllist elítisma eða plútókratí – sem er stjórn hinna ríku og voldugu. Ég er ekki alveg viss um að þetta sé frjálshyggja.

Páll Baldvin Baldvinsson gengur reyndar enn lengra í leiðara í Fréttablaðinu í dag:

Því nú er þörf á skýrum línum: populismi hinna velsnyrtu ungmenna flokksins, sem eru reyndar flest komin á miðjan aldur, má ekki dylja beinskeytt stefnumið borgaralegrar frjálshyggju, sem heimtar að lýðræði og frelsi séu í hávegum höfð – því Andríkishópurinn er lýðræðissinnaður – ekki hneigist hann bak við tjöldin að alræði hinna ríku í gegnum fasíska leiðtogastjórn?„Annars hefur Hannes eitt og annað um þetta að segja í frægu viðtali um Íslenska efnahagsundrið:

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=AoD8umlAOFs]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu