
„Nú er nauðsynlegt að taka upp virkt lýðræði og losa þjóðina við útsendara flokkseigenda í fjármálafyrirtækjum, stjórnsýslunni, háskólum og fjölmiðlum.“
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Röddum fólksins sem ætla að halda áfram að mótmæla.
Ég öldungis fylgjandi því að sé hreinsað til hér í kerfinu.
En ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvað þetta þýðir. Allavega ekki nákvæmlega.
Hverja á að hreinsa út úr háskólum og fjölmiðlum? Erum við að tala um menningarbyltingu?
Og hvenær ætla Raddir fólksins á efna til mótmæla gegn „útrásarvíkingunum“ – og heimta til dæmis að þeir skili aftur peningunum sem þeir komu undan?
Annars hef ég grun um að mótmæli brjótist út aftur fyrr eða seinna – þegar kemur í ljós að verðandi ríkisstjórnir, hverjir sem skipa þær, verða ráðalausar gegn kreppunni og neyðast til að skera niður í stórum stíl og líklega hækka skatta.
Því, eins og þar segir, það er ekki önnur leið.