
Tilboðið sem Almenningshlutafélag hefur lagt fram í Morgunblaðið er athyglisvert.
Ekki bara vegna þess að það væri merkileg tilraun að hópur sem ætti dagblað væri mjög dreifður – og blaðið því væntanlega nokkuð frjálst og óháð.
Heldur líka vegna þess að Morgunblaðið er einstakt.
Ég veit að andstæðingar blaðsins gnísta tönnum af vonsku þegar þeir heyra þetta.
En það verður aldrei stofnað annað Morgunblað á Íslandi eða neitt í líkingu við það.
Blaðið á sitt stóra áskriftarkerfi, sitt dreifingarkerfi; það er óhugsandi að hægt sé að koma upp neinu í líkingu við það.
Blaðið á gríðarstórt og merkilegt gagnasafn. Þar eru ekki bara fréttir og greinar sem hafa birst í blaðinu í marga áratugi, heldur líka stærsta ljósmyndasafn á Íslandi.
Í þessu eru fólgin gríðarleg verðmæti sem þó er erfitt að meta beinlínis til fjár.
Það er kannski frekar að tala um menningarverðmæti.