
Kjósendur Kristjáns Möllers samgönguráðherra eru ekki í Reykjavík.
Þeir eru norður í landi.
Þess vegna er Kristjáni hjartanlega sama um hvað fólki í Reykjavík finnst.
Hann getur setið til eilífðarnóns á Alþingi meðan hann skaffar fyrir sitt kjördæmi.
Þess vegna beitti hann sér fyrir Héðinsfjarðargöngum – óhagkvæmustu vegaframkvæmd í Íslandssögunni.
Þess vegna ætlar hann að láta bora göng í Vaðlaheiði.
Þess vegna ætlar hann að reisa risastóra flugstöð á Reykjavíkurflugvelli.
En það er ekki við það komandi að Kristján stuðli að samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu eða hafi nokkurn áhuga á að efla hag höfuðborgarinnar eða bæta lífsgæðin þar.
Það er ekki drifið í að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar – ég keyrði þar um í myrkri um daginn. Partar af veginum eru eins og dauðagildra.
En Kristján þarf þess ekki.
Atkvæðin hans eru ekki þar.