
Eins og lesa má í þessari grein Olivers Kamm sem birtist á vef Guardian hefur ástandið í Írak farið stórbatnandi. Dauðsföllum meðal óbreyttra borgara hefur fækkað um meira en sjötíu af hundraði. Það er að færast líf í borgir Íraks – líka stað eins og Fallujah. Samkvæmt skoðanakönnunum telur meirihluti Íraka að hlutirnir séu að færast í rétta átt og 68 prósent segjast vera bjartsýn á framtíðina.
Þetta er ekki alveg í anda þess sem maður sér í mörgum fjölmiðlum. Vissulega má deila um hvort innrásin var réttmæt eða ekki en þetta er þróun sem flestir hljóta að gleðjast yfir.
Kamm lætur ritstjórnarstefnu Guardian hafa það óþvegið í greininni og vísar þar í orð dálkahöfundarins Seumas Milne sem notar sömu orð um innrásina í Írak og Roosevelt forseti um Pearl Harbour – a day which will live in infamy.
Var ekki Írak undir stjórn einhvers blóðugasta, grimmasta og ógeðslegasta harðstjóra í síðari tíma sögu?