
Þessi blómabreiða var fyrir utan húsið þegar við lögðum af stað í bíltúr í morgun. Það er vor, jafndægur á vori. Hér sölnar allt þegar kemur sumar, en nú eru alls staðar blóm. Í gær var hellirigning. Í dag er sól en hitinn rétt skríður yfir tuttugu stig á daginn, á kvöldin er kalt.
Í skemmtigarðinum þar sem áin Turia rann eitt sinn gegnum borgina Valencia er þessi risastytta sem börn klifra í og renna sér niður á. Við áttuðum okkur á að þetta myndi vera Gúlliver þegar hann rak á fjöruna í Putalandi. Snjallt. Við vorum í hlutverki Putanna.
Í gamla árfarveginum – ánni var beint annað eftir mikil flóð 1957 – er líka hin mikla borg lista og vísinda. Við ætlum að fara að skoða hana á morgun. Það er ótrúlegt hvernig borgir á Spáni hafa gengið í endurnýjun lífdaga á fáum áratugum.
Á Meyjartorginu í gamla bænum í Valencia stóð í kvöld þessi blómum prýdda stytta af guðsmóður og Jesúbarninu. Kápan og kjóllinn eru úr blómum. Allt torgið var blómum skrýtt. Páskatunglið skein á torgið.
Borgin annars er nokkuð öðruvísi en ég hélt hún væri. Miklu líkari Barcelona. Hún leitar í norður, er í svip og hátt eins og borg norðar í Evrópu, ólíkt til dæmis borgunum í Andalúsíu.