fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Þarf að reka seðlabankastjóra?

Egill Helgason
Mánudaginn 17. mars 2008 17:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er að verða augljóst að hér hafa verið gerð stórkostleg mistök í hagstjórn. Vöxtum hefur verið haldið ofurháum meðan erlent fjármagn hefur flætt inn í landið sem lánsfé og vegna spákaupmennsku. Nú er peningamálastefnan hrunin.

Ég hélt ég væri að tala óvarlega þegar ég sagði í Silfrinu í gær að evran yrði kannski komin í 130 krónur í vikunni. En það var kannski bara raunsæi.

Maður nagar sig blóðugan í handarbökin yfir því að hafa ekki keypt evrur fyrir nokkrum vikum þegar gengið var 90 krónur.

Ungur hagfræðingur, Jón Helgi Egilsson, kom til mín í þáttinn um daginn og sagði að Seðlabankinn hefði ekki skilið stöðuna. Hann hefði beitt kenningum úr klassískri hagfræði, en vegna þess hversu hagkerfið er opið virkuðu kenningarnar ekki.

Er kannski kominn tími til að einhver í Seðlabankanum taki ábyrgð á mistökunum?

Maður sér ekki að bankinn hafi nein úrræði eða neitt traust.

Væri jafnvel hugsanlegt að reka seðlabankastjóra?

Reyndar mun Halldór Blöndal, formaður stjórnar Seðlabankans (já, hann er í því djobbi) seint grípa til slíkar aðgerða. En þá gæti ríkisstjórnin rekið stjórn Seðlabankans og skipað nýja sem síðan rekur seðlabankastjóra.

Svo þurfa stjórnmálamennirnir að upplýsa hvað þeir hyggjast fyrir. Líklega eru kjarasamningarnir fallnir. Almenningur á eftir að verða fyrir stórfelldri kjaraskerðingu vegna verðbólgu – og lántakendur þjást undan vaxtabyrðinni, hvort sem lánin eru íslensk eða erlend.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Rétt í þessu
Þarf að reka seðlabankastjóra?

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt